My way

föstudagur, apríl 21, 2006

LOVE MY LIFE!!!!!!!!!!

1. ÉG ER BÚIN MEÐ RITGERÐINA MÍNA!!!!
OMG OMG OMG ég er bara ekki að trúa því að þetta sé loksins loksins búið:) Jii dúdda mía hvað ég er fegin maður....og allir í kringum mig líka:) þetta tók nú tímann sinn, en núna þegar þetta er búið þá er það þess virði:)
Nú tekur reyndar við vinna við að setja vörnina upp, en það er nú ekkert mál miðað við að skrifa the damn thing:)

2.ÞAÐ ER KOMIÐ PARKET Á HÚSIÐ!!!!Þetta er ekkert smá flott, við erum alveg í skýjunum með parketið sem við völdum. Allt annað líf að hafa gólfefni, en eins og með ritgerðina, vel þess virði að bíða eftir þessu. Við létum leggja eikar-planka, frekar ljósa og það er fasað á milli...þið vitið svona eins og gamalt viðargólf. Mamma og pabbi komu einmitt í gær til að skoða og pabba fannst bara eins og hann væri að labba inn í gamla baðstofu...hahahha ekki alveg áhrifin sem við vorum að leita eftir, en gott að fólki finnst þetta kósý:)
Eini gallinn er nú þurfum við VIRKILEG að fara að fjárfesta í húsgögnum, það verður ennþá tómlegra á efri hæðinni núna eftir að parketið er komið...best að fara að reka á eftir skápunum sem ég pantaði í janúar:)

3. FER TIL NY...eftir ca 2 vikur...ohhh get ekki beðið, ætla sko að njóta þess að vera BARA í fríi, ekkert sem bíður eftir mér heima.....nema auðvitað Nikustelpan mín, en það væsir nú ekki um hana hjá ömmu og afa.

4. ÞAÐ ER AÐ KOMA HELGI...again...ahhhhh elska öll þessi fimmtudagsfrí. Helgin verður notuð í að organizera bílskúrinn...hefur eitthvað setið á hakanum hingaðtil:) og slaaaaaaaaaaaka á...ahhhh fyrsta samviskubits-lausa helgin í laaaaaaangan tíma.

well vona að það séu allir að kafna úr jákvæðni og gleði i dag eins og ég...veit samt að Blöndalinn minn er lasin, ekki nógu gott, sendi þér batastrauma girlfriend.

GÓÐA HELGI!!!
m-life is good