My way

föstudagur, janúar 19, 2007

Svaka fréttir!!!!!!!!!!!

Eða ekki:)

Svei mér þá, ég er ennþá að ná mér niður eftir brúðkaupið hjá Gunna og Maju....díó míó, skemmtilegasta brúðkaup aldarinnar:)

Vikan hefur verið tíðindalaus, ekkert spennandi gerst, jú við keyptum okkur reyndar stofu skáp sem kemur ágætlega út.

Helgin lítur vel út. Okkur er boðið á frumsýningu í kvöld, ef ég næ að redda pössun þá kíkjum við á það...( takið eftir að ég sagði ÉG....reikna ekki með að Smárinn minn verði búinn að redda þessu þegar ég kem heim:))

Ætla að vinna aðeins um helgina, en svo er bara kósýheit heimavið.


....gleymdi bóndadeginum í morgun:( agalegur auli maður:)

vá maður, ég veit að þetta blogg á eftir að gleðja marga...vitna bara í Sigrúnu vinkonu mína....stundum snýst lífið ekki um annað en að koma sér af stað á morgnanna,
henda í þvottavél, elda og fara að sofa.....

Gleymdi nú reyndar að óska Önnu Siggunni minni skriflega til hamingju með afmælið í gær.....þær mæðgur komu í mat til okkar í gærkveldi, alltaf jafn kósý og gaman að fá þær.

well well góða helgi pípól

m-boring