My way

föstudagur, september 21, 2007

Föstudagur...again

Vá hvað vikan var fljót að líða maður.
Ég kvaddi alla í actavis á mánudaginn. Hefði ekki trúað því en ég varð bara alveg ómögulegt, fór að skæla og allar græjur...jafnaði mig samt fljótt:)

Byrjaði hjá Vistor á þriðjudaginn og þar hoppaði ég bara strax inn í frábæran hóp af endalaust skemmtilegum stelpum. Vinnan lofar góðu og ekki skemmir fyrir að hafa Blöndalinn við hliðina á sér again ( sakna þín samt ógurlega annsý mín).

Fyrsti föstudagurinn minn hér og fyrsta vinnudjammið í kvöld. Allir í massa stuði og hér voru kampavíns flöskurnar opnaðar um klukkan 2:) ohhhh pínu svekkjandi að sötra diet kók á meðan, en ég hlakka allavega til að fá góðan mat í kvöld og sjá skemmtiatriðið hjá yfirstjórninni...skilst að þetta sé eitthvað sem enginn má missa af.

Helgin framundan. Ætla að leggja allan minn metnað í að gera ekki neitt. Fer samt í barna-afmæli á sunnudaginn, Kristín Marý krútttköggull er að verða 2 ára.

vá..frekar óspennandi blogg..en blogg engu að síður ( annað en sumir).

oao
m-high on diet kók