My way

þriðjudagur, september 11, 2007

Hver vill súkkulaði þegar hann getur fengið gulrót????

Var nærri því dáin áðan, það hrökk ofaní mig gulrót nefnilega...muhahhahahahah í alvöru sko!!!

Fyrsti tíminn í meðgönguleikfiminni í gær. Við sprikluðum ekki nema í 10 mín, fór allur tíminn í að fræðslu....thank god segi ég nú bara,ég var eins og hvalur eftir þessar 10 mín og er sko með strengi í kálfunum í dag:)

Eini lausi eftirmiðdagurinn í vikunni í dag, ætla sko beint heim í heitt bað og byrja á nýrri bók...ó nó wait, þarf fyrst að fara í búð, svo henda í þvottavél, svo hlusta á Veroniku lesa, elda, borða og svo er bara háttatími....ahhhhhh the good life in suburbia:)

jæja þarf að halda áfram að henda og vista....ekki nema 3 dagar í viðbót, hlakka geðveikt til að komast til stelpnanna hinumeginn:)

oao
m-sporty spice