My way

fimmtudagur, nóvember 22, 2007

Fimmtudagar alltaf fínir

já ég er alltaf sátt á fimmtudögum. Í fyrsta lagi er engin leikfimi á fimmtudögum, sem er mega plús, í öðru lagi kemur fimmtudagur á undan föstudegi sem er fyrsti dagurinn í helginni..svona FYI bara:)

Sé að það eru ekki mikil viðbrögð við uppeldis/heimspeki bloggi mínu í gær....bara mörgæsin sem hefur skoðun, enda stelpan hennar með eindæmum vel upp alin og kurteis:)

What else...nothing held ég bara....er að hugsa um að hafa skipulags-helgi um helgina, bóndanum til mikillar gleði. það þarf að festa fleiri hillur á vegginn í þvottahúsinu, það þarf að bóna flísarnar og gera forstofu herbergið klárt....svo væri ekki verra að fá peru í útiljósið:) Hljómar skemmtilega ekki satt???

Mynd í bíó sem mig langar að sjá líka, American gangster held ég að hún heiti. Með Denzel Washington í aðalhlutverki...aldrei fílað hann, en ég held að myndin sé góð.



Er ennþá pínu jet-lagged eftir ferðina held ég, amk er ég alveg skelfilega syjuð á morgnanna og daginn en hressist á kvöldin...eða er það bara vegna þess að ég er í vinunni á daginn en að horfa á Stevie á kvöldin???? perhaps...

OAO
m-dead tired