My way

miðvikudagur, janúar 23, 2008

What's new...

Jæja ég náðu mér náttúrulega í gubbupestina líka, algjör viðbjóður,og var því heima á mánudaginn.
Dröslaðist samt út í bíl til Smára seinnipartinn til að fara í vaxtarsónar og litli maðurinn er sko orðinn 2,5kg!!!!! Nikustelpan var 2,7kg þegar hún FÆDDIST..og ég á eftir að ganga með drenginn í 6 vikur í viðbót:) Herregud í himmelen segi ég nú bara:) Nú er ég búin að fara í "nokkrar" sónar-skoðanir og það fyrsta sem þær segja um soninn er alltaf: "nei sko, engar smá bollukinnar"...ARGGGGGGGGGGGG hann verður að draga þær inn áður en ég fæði hann sko......


Annars ekkert nýtt svosem, við hjónin erum komin með MEGA bakþanka yfir BABY BLUE litnum sem við keyptum til að mála barnaherbergið:) hann er kannski aaaaaaaðeins of dökkur..hahahhah smá fljótfærni þarna í gangi, en það er nú vel þekkt hjá þessarri húsfrú og ég redda þessu einhvern vegin...læt strákana í Húsasmiðjunni bara þynna þetta út....er það ekki örugglega hægt????

Fannst svo leiðinlegt að sjá í morgun að Heath Ledger er dáinn...ekki það að ég hafi þekkt hann eða verið mikill aðdáandi, en maðurinn átti litla dóttur og það er bara agalegt þegar ungt fólk fer svona.....þetta er fólk á mínum aldri!!

Svo er mín orðin MEGA blondína núna. Fór í klippingu og litun í gær og strákurinn vildi bara hafa mig alveg blond....kemur ágætlega út held ég bara:)


Þetta var blogg í svona fréttaskýringarstíl....skemmtilegt...eða þannig.

...ég talaði amk ekki um borgarstjórnina.....

OAO
m-blondie