My way

þriðjudagur, apríl 01, 2008

Mæling og mæling

Jæja Nói Fannar er orðinn 4,8 kg!!! Hann er búinn að bæta tæpu kilói á sig síðan hann fæddist, verður það að teljast nokkuð gott. Hann er einni kúrvu fyrir ofan meðaltal..en ég held að öll íslensk börn séu það nú:) Ég er nú samt stolt af snáðanum, þetta er hans eina hlutverk, að stækka, og hannstendur sig vel í því!!

Ég er ekki að standa mig eins vel eða pumpan mín öllu heldur:( Blóðþrýstingurinn er mjög hár, enda hef ég verið að fá hausverk nánast daglega frá fæðingu (sem er alveg nýtt fyrir mér) og svo þetta með yfirliðs-tilfinninguna í leikfiminni....þarna sjáiði, málið var ekki að ég væri í svona slöku formi..þetta var bara þrýstingurinn...hihihihihi

Er að fara að hitta allar skvísurnar í Vistor á eftir, við Maja ætlum að kíkja saman með gullin okkar, verður geggjað að hitta þær allar aftur:)

jæja þangað til næst

OAO
m-hástökkvari vikunnar