Nikustelpan mín litla orðin 5 ára
ohhhh við áttum svo yndislegan morgun. Við Smári sungum fyrir stelpuna, vorum mætt með muffins og kerti og sungum hástöfum. Sú stutta vaknaði með stýrurnar í augunum, leit á muffinsið og kertið og sagði "bíddu það verður stærri kaka er það ekki"..hahahhah. Well svo var komið að pakkastund og hún reif upp svona CD tæki með mikrafónum..very very cool, bleikt og töff:) svo var sungið og dansað þar til allir voru orðnir allt of seinir í vinnuna.
Fyndið hvað maður verður viðkvæmur þegar maður eignast börn, ég var alveg með tárin í augunum þegar ég keyrði í vinnuna, er eitthvað svo stolt af stelpunni minni og finnst svo rooooosalega stutt síðan hún lá bara sofandi á brjóstinu...og nú er þetta bara orðin lítil kona með fullt af skoðunum...og hér kemur klisjan...dææææs hvað tíminn er fljótur að líða:)
well hef ekki tíma í meira.
hafið það gott í dag í rigningunni og rokinu:)
OAO
m-stolt mamma