My way

þriðjudagur, janúar 09, 2007

Fashion tips

Jæja eins og fram hefur komið þá er húsfrúin á nesinu í alvarlegri tísku krísu þessa dagana, hef þurft að segja skilið við hælaskóna sem ég hef gengið í síðan 1979.

Blöndalinn bætti svo gráu ofaná svart þegar hún fór að dissa sléttujárnið mitt í gæsapartýinu hennar um daginn, sagði að þetta væri rusl sem hefði verið keypt fyrir 10 $ í Target og að alvöru pæjur áttu sko svona jóna-keramíks soemthing..sléttujárn.

Ok, ok hugsaði ég með mér, fyrst að ég get ekki verið smart að neðan er best að fara að fókusera á toppinn í staðinn, draga athyglinni frá ógeðinu sem ég neyðist til að ganga á.
Fór því í Hagkaup í gær ( já bíddu róleg maría Blöndal, ég byrjaði á hárgreiðslustofunni, þar kostaði þetta jóna-dót 15.000 ISK-not gonna happen darling)...og keypti mér svaka flott jóna-keramíks-verður beautiful in seconds-sléttujárn.
Það er sko meiriaðsegja digital hitastilling á þessu!!!
Well ég ákvað að lesa leiðbeiningarnar í gærkveldi til að vera 100% tilbúin fyrir morguninn.
Leiðbeiningarnar voru á þessa leið:

1. Þvoðu þér um hárið, þetta er gert með því að bleyta hárið ( ok ég var alveg með þetta áður) settu svo sjampó í lófann ( ok ég er ennþá með) setjið sjampó í blautt hárið og nuddið vel...munið svo að skola vel úr..öhhhhh ok verð að muna þetta:)
2. Þurrkið hárið...þetta er best að gera með því að taka þurrt handklæði (ahhhh good thinking) og fara vel yfir allt hárið þar til þið finnið að bleytan er ekki eins mikil og í byrjun.....ég hugsað með mér...er þetta djók????

...svo hélt þetta áfram og áfram, muna að setja sléttujárnið í samband, muna að nota það ekki nema í nokkrar sek á hvert því þá gæti kviknað í hárinu.


HVAÐ ER AÐ GERAST????? eru allir orðnir heilalausir eða er raunverulega til fólk sem kann ekki að fara í sturtu?????


OAO
m-veraldavön, kann að fara í sturu OG bað

mánudagur, janúar 08, 2007

Noj Noj bara ný færsla hjá kellingunni á nesinu

Held að það hafi aldrei liðið jafn langt á milli blogga hjá mér. Maður mundi halda að þessi færsla yrði krassandi frásögn af lífi útivinnandi húsfrúar á nesinu....en ég hef bara ekkert að segja. Það er þó rétt að staldra við og líta yfir farinn veg á nýju ári...( tóku þið eftir þessu, er farin að æfi mig í að halda ármamótaræðuna þegar ég verð forsetisráðherra).

Árið 2006 var gott, heilsan hefði mátt vera betri, en við höfum hvort annað..muahhahahah eins og í gömlu lottó auglýsingunum muniði???

Jólin 2006 voru súper. Hanna kom heim eins og venjulega og við tjilluðum vel saman, alltaf æði að fá hana en hræðilegt að kveðja hana.

Fór til læknis á milli jóla og nýárs útaf bakinu, er komin með stórt brjósklos á sama stað og síðast...kom mér ekki á óvart enda er ég búin að vera svo skelfilega slæm. Það sem kom mér á óvart var hinsvegar að það á ekki að gera neitt við þessu. Læknar töldu að fyrst að ég væri orðin svona slæm aftur ári eftir fyrri aðgerð þá væri ekki ráð að skera mig aftur....ég fékk taugaáfall, enda búin að búa mig andlega undir að þurfa að leggjast undir hnífinn aftur...jafnvel farin að sjá fyrir mér að geta gengið almennilega aftur. Svo fékk ég aftur taugaáfall þegar meðferðin var nefnd....sleppa sjúkraþjálfun og bak-beltinu ( sem heldur mér basically saman) og fara í GÖNGUTÚRA......öhhhhhh svona fyrir utan það að ég hef óbeit á hversskonar óþarfa hreyfingu þá get ég bara varla gengið hvað þá farið í alvöru göngutúr......dæs og væl. ó well ég verð víst að fara eftir þessu..þannig að ef þið sjáið konu í rauðri úlpu sem gengur eins og krypplingur ( í bleikum strigaskóm við)....ekki hringja á heilbrigðiseftirlitið, þetta er bara ég:)


OK, nú ætla ég ekki að blogga meira um bakið á mér, fyrsta og síðasta væl ársins 2007!!!!!

Framundan er brúkaup Maju og Gunna, ég get ekki beðið, hef það sterkt á tilfinningunni að þetta verði partý ársins:)

Jæja held að ég láti þetta duga.

áramótakveðja,
m