My way

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Óléttasta kona í öllum heiminum og geiminum

"Ég hef aldrei séð konu sem er jafn ólétt og þú, og hef ég nú séð þær margar"

..þetta kom frá sprenglærðum hjúkrunarfræðingi sem ég vinn með:)

Þetta er svakalegt maður, ég vissi svosem að ég væri með asskoti myndarlega bumbu...en að maður sé læknaundur ( nú eða læknafrík) kom nú pínu á óvart:)

Ó well, mér líður vel og ef marka má hreyfingar stráksins þá líður honum súper vel....kannski afþví að hann býr í stærstu kúlu sem mannkynið hefur séð....hugsanlegt:)

kv
hvíti hvalurinn

þriðjudagur, nóvember 13, 2007

Baltimore baby

Jæja nú fer senn að líða að Baltimore ferð okkar mömmu:)
Þetta er nú bara helgarferð, en við ætlum að shop til we drop á föstudaginn, ég ætla að sjálfsögðu að græja gaurinn upp fyrir fyrsta árið...taka íslendinginn á þetta í H&M bara:)



Á laugardaginn ætlum við að skoða okkur um í Baltimore. það er víst jólamarkaður þarna sem heillar og svo er alvöru amerísk jóla-skrúðganga..svona með bílum og veifandi fólki og allar græjur:) Getur ekki verið annað en stuð að sjá það:)

Sunnudagur fer örugglega í last minute shopping og afslöppun, en svo fljúgum við heim um kvöldið.

árshátíðin var æðisleg um helgina:) Við stelpurnar fórum í make up og greiðslu og vorum ógó fínar þó ég segi sjálf frá:) verð að stela einni mynd hjá nöfnu minni Blöndal...sjáiði stemmninguna hjá "the white whale":




jæja er að fara á fund, heyrumst síðar!!

OAO
mæja dancing queen