My way

föstudagur, febrúar 20, 2009

..poison running trough my veins....la la la

Ég gat nú ekki annað en brosað út í annað þegar ég las fréttina um Árna Johnsen í morgun. Maðurinn er sannfærður um að eitrað hafi verið fyrir honum...já og pólzki læknirinn sem skolaði úr borunni á honum hjá Jónínu Ben staðfesti þetta!!

Aðferðin er nokkuð hefðbundin finnst mér, eitrinu komið fyrir í fæðubótarefni sem ÁJ var að taka.....ok ok ok þarna fór vísindamaðurinn í mér aðeins að pæla sko.....hver í andskotanum kemst í fæðubótarefnið hans Árna og getur haft það nógu lengi til að sitja og sprauta eitrinu í hverja og eina töflu???? Ég sé enga aðra leið....ekki nema skúrkurinn vinni í verksmiðjunni þar sem töflurnar eru framleiddar......vá ég er amk mjög spennt yfir þessu máli og ætla að fylgjast veeeel með, kannski er bara komið nýtt háþróað glæpagengi hér á Klakann og þá mega nú nokkrir aðrir þingmenn fara að vara sig sko:)

hahahha þetta er snilld, ég ætla amk að þefa vel af vítamíninu mínu á morgnanna áður en ég tek það:)




Annars segi ég bara góða helgi people!!!!!!

m-eiturefnalögga

fimmtudagur, febrúar 19, 2009

say no more